Ný síða
Ég er ekki að fíla kerfið á þessari síðu þannig að ég er komin með katlahrund.blogcentral.is auðveldara og þæginlegra kerfi =)
Ég er ekki að fíla kerfið á þessari síðu þannig að ég er komin með katlahrund.blogcentral.is auðveldara og þæginlegra kerfi =)
Góðan dag!
Ætli maður verði ekki að vera með blogg til að leifa fólki að vita hvað sé að gerast hjá manni þegar maður fer til Brazil! Það eru líka bara 30 dagar í að ég fari!!! Var ekki alveg að fatta hvað það er stutt í þetta fyrr en ég fór á AFS námskeiðið um helgina. En ég er allavegana að deyja úr spenning en kvíð samt fyrir að fara frá Pjakknum mínum ef hann skildi síðan gleyma mér , hehe (Pjakkur er hundurinn minn btw..)
Var að tala við Pricylu (Systur mína) í gær og við vorum að tala um hvað við eigum eftir að hlæja úr okkur lungun þegar ég kem, hún að mér fyrir að kunna ekki að tala portúgölsku, og ég að henni því að ég ætla að láta hana tala íslensku til að hefna mín! hahaha Svo erum við búnar að plana alveg helling hvað við ætlum að gera,ætlum að reyna að komast á Blues og Jazz festival í litlu fjallaþorpi þarna rétt hjá Fortaleza sem heitir Guaramiranga í lok febrúar og svo ætlar hún með mér og kynna mig fyrir öllum vinum hennar og hún ætlar að fara með mig á alla helstu staðina sem eru skemmtilegir og svona. Hljómar allavegana ótrúlega gaman! Nema hvað ég á eftir að verða eins og sólþurkaður tómatur þarna úti, þar sem ég fæ ekki lit heldur brenn bara og verð síðan bleik/rauð…
Annars er fjölskyldan mín þarna úti bara mjög æðisleg að sjá, það er pabbinn Filinto og þrjár systur, Patricia 22 ára, Pricyla 21 árs og Ana Paula sem mig minnir að sé 12 ára. Ég og Pricyla náum allavegana mjög vel saman og ég er búin að kynnast nokkrum vinum hennar og líka AFS sjálfboðaliðum í Fortaleza og svona gegnum alnetið.
Svo er ég að gera heiðarlega tilraunir til að læra portúgölskuna áður en ég fer, ætla að setja svona post-it miða á alla hluti hérna inni og skrifa á portúgölsku hvað það er, ég á samt pottþétt eftir að verða svo stressuð þegar ég kem að ég á eftir að gleyma öllu! Annars ferðast ég með allavegana einum strák held ég alla leið til Sao Paulo og svo flýgur hann þaðan til landsins sem hann er að fara, sem er mjög fínt því ekki nenni ég að vera ein að ferðast í rúman sólahring.
Hérna eru einhverjar google myndir af Fortaleza
